
Úrræðið og stefnan okkar
Um Birtuhlíð
Úrræðið
Birtuhlíð er búsetuúrræði fyrir börn með hegðunar-vandamál og fjölþættan vanda.
Markmið Birtuhlíðar er að veita börnum skýra, skipulagða og örugga þjónustu í formi skammtíma- eða langtíma búsetu allt til 18 ára aldurs, með möguleika á áframhaldandi stuðningi á fullorðinsárum.
​
Í Birtuhlíð er lögð áhersla á fyrirsjáanlegt umhverfi, skýrar reglur og samræmd viðbrögð starfsfólks. Börnunum er veittur stuðningur við daglegt líf, skólasókn, tómstundir og félagslega þátttöku með það að markmiði að auka færni, sjálfstæði og ábyrgð.
​
Leiðarljós úrræðisins er að veita börnunum raunhæft veganesti út í lífið með markvissri færniþjálfun, stuðningi við menntun og atvinnuþátttöku og styrkja viðeigandi hegðun sem styður við sjálfstætt líf.
Stefnan
Stefna Birtuhlíðar er að draga úr líkum á því að einstaklingar verði langvarandi þjónustuþegar velferðarkerfisins á fullorðinsárum. Áhersla er lögð á að styðja við virka samfélagsþátttöku í formi náms, atvinnu og sjálfstæðrar búsetu eftir því sem við á.
​
Að baki Birtuhlíð stendur fagfólk með fræðilegan bakgrunn og víðtæka reynslu af störfum með börnum og ungmennum með hegðunarvanda, þar á meðal einstaklingum með áfallasögu og fíknivanda. Starfsemin byggir á gagnreyndum aðferðum, skýru verklagi og stöðugu mati á árangri íhlutana.
Vinnulag og faglegur rammi
Starfsemi Birtuhlíðar byggir á meginreglum hagnýtrar atferlisgreiningar. Íhlutanir eru einstaklingsmiðaðar og byggja á kerfisbundnu mati á hegðun og færni, með áherslu á:
​
-
jákvæða styrkingu og kennslu viðeigandi hegðunar
-
skýrar afleiðingar og samræmd viðbrögð starfsfólks
-
fyrirbyggjandi aðgerðir og skipulag daglegs umhverfis
-
reglulega gagnasöfnun og mat á árangri
​
Birtuhlíð nýtur utanaðkomandi ráðgjafar frá klínískum atferlisfræðingi sem styður við faglegt mat, þróun íhlutana, þjálfun starfsfólks og gæðastjórnun.

Birtuhlíð starfar með formlegt rekstrarleyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) til að reka sérstakt húsnæði fyrir börn með fjölþættan vanda.
Leyfið byggir á ítarlegu mati á starfsemi, hæfni starfsfólks, húsnæði og innra eftirliti.
GEV metur að Birtuhlíð uppfylli allar kröfur um:
-
Faglega hæfni og rekstrarhæfi
-
Öruggt og viðeigandi húsnæði
-
Starfsmannahæfni og eftirlitskerfi
Teymið
Um okkur
​​​​
​
Guðmundur býr yfir löngum og fjölbreyttum námsferli, sterkum fræðilegum grunni og víðtækri reynslu af vinnu með börnum og unglingum með hegðunarvanda, fjölþættan vanda og fíknivanda.
Guðmundur Stefán Erlingsson er með BA- og meistaragráðu í félagsráðgjöf og hefur starfsréttindi sem félagsráðgjafi. Hann hefur jafnframt lokið diplómanámi í samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, auk fjölda námskeiða í tengslum við störf sín hjá Barna- og fjölskyldustofu.
​
Guðmundur starfaði í 21 ár á Stuðlum, meðferðarstöð fyrir unglinga, og hefur einnig starfað í búsetuúrræðum fyrir einstaklinga með fjölþættan vanda sem og í íbúðakjörnum fyrir fatlaða einstaklinga. Hann hefur lokið námi í sátta-miðlun og hefurstarfsréttindi sem sáttamiðlari. Að auki er hann með réttindi sem ART-þjálfari og þjálfararéttindi hjá ÍSÍ.​


Andri Már Ágústsson hefur starfað um árabil á Stuðlum, meðferðarstöð fyrir unglinga með hegðunarvanda, og býr yfir víðtækri reynslu af vinnu með börnum og unglingum með hegðunarraskanir og fíknivanda. Hann hefur jafnframt unnið með einstaklingum sem eru að stíga sín fyrstu skref í bata frá fíknisjúkdómum og hefur lokið markþjálfanámi hjá Profectus.
​​
​Andri Már hefur einnig rekið áfangaheimili, farið með mannaforráð og sinnt sértækri heimaþjónustu á vegum sveitarfélaga. Þar að auki hefur hann starfað í búsetuúrræðum með ungum drengjum með fjölþættan vanda og hegðunarraskanir.

Jón Vignir Daníelsson er bifvélavirki með 15 ára reynslu af störfum í faginu. Hann býr yfir umfangsmikilli reynslu bæði sem sjálfstæður atvinnurekandi og sem flotastjóri hjá bílaleigu, þar sem hann hefur jafnframt verið með mannaforráð. Að auki er hann með kennsluréttindi frá ISAF í kænusiglingum.
​
Jón býr yfir dýrmætri blöndu af tæknilegri færni og kennslu þekkingu. Hann hefur jafnframt starfað í búsetuúrræðum fyrir börn með fjölþættan vanda, einkum við vinnu þjálfun og kennslu, og hefur mótað og sinnt því hlutverki í störfum sínum með drengjum í slíkum úrræðum.
Hafðu samband
Við erum hér til að hjálpa og alltaf opin fyrir samtali, hvort sem um er að ræða spurningar, ráðgjöf eða næstu skref.
